Gunnar Smári Egilsson, sem verið hefur forstjóri 365 ljósvakamiðla ehf. og 365 prentmiðla ehf. verður forstjóri Dagsbrúnar hf. Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins tekur við starfi forstjóra 365, að því er segir í frétt frá Dagsbrún.

Gunnar Smári er einn af stofnendum Fréttablaðsins og stýrði skjótum vexti þess. Hann hefur leitt samruna ljósvaka- og prentmiðla félagsins sem getið hefur af sér mikinn vöxt. Verkefni Gunnars Smára verður að stýra sókn Dagsbrúnar á erlenda markaði. ?Það hefur alltaf verið sannfæring okkar að ef okkur tækist að byggja upp öflugt fjölmiðlafyrirtæki á 300 þúsund manna markaði ætti sýn okkar og stefna fullt erindi á stærri markaði."

Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur verið ráðinn forstjóri 365 ljósvaka- og prentmiðla. Ari hefur starfað fyrir SA frá árinu 1999. Áður starfaði Ari sem aðstoðarmaður dóms-og kirkjumálaráðherra og aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Ari var ritstjóri Viðskiptablaðsins 1998. Ari er með Stúdentspróf frá MS. 1983. Embættispróf í lögfræði frá H.Í. 1988. MBA í rekstrarhagfræði frá University of San Francisco, McLaren School of Business. 1991. ?Mér finnst 365 gríðarlega spennandi fyrirtæki sem hefur verið byggt upp af myndarskap af kraftmiklu fólki og hlakka til að takast á við þetta verkefni."

Eiríkur S. Jóhannsson lætur að störfum sem forstjóri Dagsbrúnar en tekur við starfi hjá Baugi Group. ?Ég tók að mér að leiða það verkefni að setja saman undir eitt móðurfélag rekstur 365 miðla og Og Vodafone. Því verkefni er að mestu lokið og þar sem mér hafa boðist önnur spennandi verkefni tel ég rétt að aðrir leiði sókn Dagsbrúnar."

Þórdís Sigurðardóttir stjórnarformaður Dagsbrúnar segir að stjórnin hafi tekið ákvörðun um útrás á sviði fjölmiðlunar og mun Gunnar Smári Egilsson leiða hana. Viðar Þorkelsson framkvæmdastjóri fjármála Dagsbrúnar mun sem fyrr sjá um fjármálastjórn samstæðunnar allrar. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone, mun stýra uppbyggingu fjarskiptahluta Dagsbrúnar en Ari Edwald fjölmiðlahlutanum innanlands. ?Við þökkum Eiríki gott starf við samruna og samhæfingu fyrirtækja innan Dagsbrúnar þar hefur sérkunnátta hans nýttist félaginu vel. Næstu verkefni félagsins verða uppbygging félagsins á erlendum mörkuðum, einkum á sviði fjölmiðlunar. Gunnar Smári Egilsson leiða þá sókn auk þess að gegna forstjórastarfi í Dagsbrún.