Fjármálaeftirlitið hefur veitt Arion banka heimild til að eiga og fara með yfir 50% virkan eignarhlut í Valitor hf.

Arion banki óskaði eftir heimild til að auka virkan eignarhlut sinn í Valitor óbeint í gegnum hlutdeild sína í Valitor Holding hf.

Samkvæmt tilkynningu á vefsíðu FME telur eftirlitið Arion banka hæfan til að eiga og fara með eignarhlutinn meðal annars með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs Valitor. Fjármálaeftirlitið veitti þann 12. október sl. Arion banka heimild til að fara með yfir 50% eignarhlut í Valitor.