Arion banki hefur tilkynnt um að útibú bankans að Suðurlandsbraut,í Árbæ og í Grafarvogi verði sameinuð í eitt nýtt útibú. Hið nýja útibú verður staðsett á Höfða, í sama húsnæði og Húsgagnahölliner til húsa við Bíldshöfða.

Síðasti afgreiðsludagurútibúanna sem á að loka verður 22. mars. Daginn eftir mun nýja útibúið a ðHöfða verða opnað. Öl lbankaviðskipti gömlu útibúanna verða færð í það nýja og öll banka- og reikningsnúmer munu haldast óbreytt ásamt debet- og kreditkortum.

Fjöldi starfsmanna og viðskiptavina á bak við hvert útibú íslenskra banka hefur verið mun hærri en hjá nágrannalöndum okkar og vinna við að fækka útibúum hefur farið fram hjá öllum íslenskum bönkum.