Arion banki færði á síðasta ári lán til viðskiptavina niður um 12 milljarða króna samkvæmt ársreikningi sem birtur var í dag. Þar af voru lán til fyrirtækja færð niður um 10,2 milljarða króna og lán til einstaklinga um 1,8 milljarða króna. Árið 2008 nam niðurfærslan 15 milljörðum á lánum til fyrirtækja og 3,4 milljarða á lánum til einstaklinga.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Arion banka var hagnaður bankans 2009 12,8 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár var 16,7%. „Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand er enduruppbygging Arion banka vel á veg komin og byggist á sterkum efnahag, góðri lausafjárstöðu og traustri fjármögnun. Með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar sl. styrktist eiginfjárstaða bankans enn frekar þar sem Kaupskil lagði bankanum til nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti bankanum víkjandi lán. Við þetta fór eiginfjárhlutfall bankans úr 13,7% í lok árs 2009 í 16,4%. Fjármálaeftirlitið gerir nú kröfu um 16% eiginfjárhlutfal," segir í fréttatilkynningu.

Hér er að finna helstu þætti uppgjörsins sem Arion banki dregur sjálfur fram:

  • Hagnaður eftir skatta nam 12,8 ma.kr. á árinu 2009.
  • Tekjuskattur nam 2,5 ma.kr., þar af er áætlað að til greiðslu komi um 1 ma.kr. á árinu 2010.
  • Enginn arður verður greiddur til hluthafa bankans árið 2010 vegna hagnaðar á árinu 2009.
  • Rekstrartekjur námu alls 49,6 ma.kr. á árinu.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 12,1 ma.kr.
  • Hreinar þóknunartekjur námu 5,9 ma.kr.
  • Nettóbreyting á lánasafni nam 10,3 ma.kr. en þar er bæði tekið tillit til virðisaukningar vegna líkum á betri endurheimtum og virðisrýrnunar sem hefur orðið á lánasafninu. Þá eru 10,6 ma.kr. gjöld tilkomin vegna samningsbundinnar lækkunar á kröfu bankans á Kaupþing vegna hlutdeildar Kaupþings í virðisaukningu hluta þeirra eigna sem færðar voru frá Kaupþingi til Arion banka haustið 2008.
  • Tekjur frá dótturfélögum sem bankinn hefur tímabundið tekið yfir eru 17,8 ma.kr. en þar á móti koma laun og rekstrarkostnaður þessara félaga samtals að fjárhæð 18,0 ma.kr.
  • Gengishagnaður nam samtals 10,3 ma.kr. sem skýrist einkum af 7,6% veikingu íslensku krónunnar gagnvart gengisvísitölu Seðlabanka Íslands á árinu 2009 og neikvæðum gjaldeyrisjöfnuði bankans.
  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna og skulda var 1,9% á árinu 2009.
  • Arðsemi eigin fjár var 16,7%.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 57,5%.
  • Í árslok 2009 voru 1.096 stöðugildi hjá bankanum.
  • Heildareignir námu 757,3 ma.kr. í lok árs 2009 samanborið við 641,2 ma.kr. í lok árs 2008. Helstu breytingar á eignum bankans má rekja til endurgjalds vegna yfirtöku skuldbindinga vegna innlána SPRON og eigna og skulda Sparisjóðs Mýrasýslu á fyrri hluta ársins 2009 ásamt veikingu íslensku krónunnar.
  • Heildarútlán til lánastofnana og viðskiptavina námu 396,2 ma. kr. en innlán voru 609,1 ma.kr. í árslok 2009.
  • Þann 8. janúar 2010 þegar Kaupskil tók yfir 87% hlutafjár Arion banka jókst eigið fé bankans úr 90,0 ma.kr. í 93,9 ma.kr. Á sama tíma jukust heildareignir bankans um 80,2 ma.kr. í 837,6 ma.kr. Lánabók bankans óx um 112,8 ma.kr. en skuldabréfaeign lækkaði um 32,6 ma.kr. þar sem ríkið fékk 87% af hlut sínum greiddan til baka.