Einar Örn Ævarsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Arion banka í Garðabæ og Hildur Markúsdóttir tekur við sem útibússtjóri bankans í Hafnarfirði.

Færir sig frá Hafnarfirði til heimabæjarins

Einar Örn tekur við starfinu af Kristbjörgu Héðinsdóttur sem færir sig um set innan bankans og tekur við starfi forstöðumanns þjónustustýringar að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Arion banka.

„Einar Örn er viðskiptafræðingur að mennt. Hann hefur lengst af starfað í fjármálageiranum og frá árinu 2013 verið útibússtjóri Arion banka í Hafnarfirði. Einar Örn er Garðbæingur, giftur Andreu Olsen lögfræðingi og eiga þau þrjá drengi,“ segir í tilkynningunni.

Hildur Markúsdóttir
Hildur Markúsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hafnfirðingur sem vinnur sig upp innan útibússins

„Hildur Markúsdóttir tekur við starfi Einars Arnar sem útibússtjóri Arion banka í Hafnarfirði. Hún hefur gengt starfi þjónustustjóra Arion banka í Hafnarfirði frá árinu 2014.

Hildur er viðskiptafræðingur að mennt. Hún hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 með nokkrum hléum og gengt margvíslegum störfum innan bankans. Hildur er Hafnfirðingur, gift Sigfúsi Helga Helgasyni viðskiptastjóra hjá Eimskipum og eiga þau þrjá syni.“