Samningaviðræður Arion banka við Þorstein M. Jónsson, eiganda Vífilfells, eru á lokastigum samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Von er á fréttatilkynningu frá bankanum þegar samningar liggja fyrir. Skuldir Þorsteins nema milljörðum króna.

Þorsteinn á Vífilfell í gegnum eignarhaldsfélagið Sólstafi. Í ársreikningi Sólstafa fyrir síðasta ári kemur fram að skuldir félagsins hafi verið 8,9 milljarðar króna um síðustu áramót. Auk þess voru Sólstafir í ábyrgð fyrir lánum og öðrum skuldbindingum til þriðja aðila upp á 2,8 milljarða króna í árslok. Ekki er tilgreint í ársreikningi félagsins um hvaða tengda aðila er að ræða.

Eignir Sólstafa voru metnar á um þrjá milljarða króna og munaði þar mestu um eignarhlut félagsins í Vífilfelli. Samkvæmt þessu var ljóst að eigið fé félagsins var neikvætt um 6 til 9 milljarða króna eftir því hvort ábyrgð vegna tengdra aðila var talin með eða ekki.