Arion banki hf. hefur samið við dreifðan hóp fjárfesta um kaup þeirra á öllum hlut bankans í Stoðum hf. Í fréttatilkynningu kemur fram að Arion banki hefur haft hlutinn, sem nam um 19% af útistandandi hlutafé Stoða, til sölu um alllangt skeið enda um eign í óskyldum rekstri að ræða.

Stoðir eru fjárfestingarfélag og nema eignir félagsins um 23 milljörðum króna en fyrirtækið hagnaðist um 1,1 milljarð króna á síðasta ári. Helstu eignir Stoða eru eignarhlutir í Símanum hf., TM hf. og Arion banka.