Arion banki gaf í dag út sértryggð skuldabréf til fimm ára að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur rúmum 45 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða fyrstu sértryggðu skuldabréfaútgáfu íslensks banka í evrum, að því er kemur fram í tilkynningu Arion til Kauphallarinnar.

Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 0,27% álagi á millibankavexti. „Það eru bestu kjör sem íslenskur aðili, að íslenska ríkinu meðtöldu, hefur fengið á erlendum lánsfjármörkuðum frá stofnun Arion banka fyrir um þrettán árum,“ segir í tilkynningunni. Skuldabréfin bera 0,05% nafnvexti og ávöxtunarkrafan nemur 0,095%.

Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum en í heild bárust tilboð frá yfir þrjátíu fjárfestum frá tólf löndum fyrir rúmlega 700 milljónir evra. Tilboð bárust frá eignastýringum, opinberum aðilum og bönkum en skuldabréfaútgáfan kemur í kjölfar fjárfestakynninga í síðustu viku.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion:

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel okkar fyrsta sértryggða skuldabréfaútgáfa erlendis gekk en mikil eftirspurn var eftir bréfunum meðal erlendra fjárfesta. Kjörin á skuldabréfaútgáfunni eru þau bestu sem íslenskur aðili hefur fengið í meira en áratug.

Með þessari útgáfu hefur Arion banki tekið stórt skref hvað varðar aukna fjölbreytni í fjármögnun íbúðalána og færst nær alþjóðlegri framkvæmd. Til að mynda er umtalsverður hluti íbúðalána í Noregi nú fjármagnaður með útgáfu á sértryggðum skuldabréfum í evrum. Við vonumst til að útgáfur sem þessar leiði í framtíðinni til hagstæðari kjara fyrir viðskiptavini.“

Deutsche Bank AG, Barclays Bank Ireland PLC og UBS Europe SE sáu um útgáfuna fyrir hönd bankans.