Verð á hlutabréfum í Arion banka hækkuðu mest í Kauphöllinni í dag eða um 3,2% í 85 milljóna króna viðskiptum. Næst mest hækkaði Sjóvá eða um 1,05% í 88 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkaði Icelandair um 1,04% í 102 milljóna króna viðskiptum.

Reginn lækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 1,79% í 197 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði Skeljungur næst mest eða um 1,63% í 35 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta í dag nam 2,4 milljörðum króna en íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 0,04% í dag.