Haraldur Guðni Eiðsson hjá samskiptasviði Arion banka segir það rétt að aldrei hafi neitt erindi eða kauptilboð komið frá þeim til Dróma vegna lánasafnsins sem það fyrirtæki er með. Hlynur Jónsson, stjórnarformaður Dróma, fullyrðir í grein í Morgunblaðinu í gær að Drómi hafi aldrei fengið tilboð frá bankanum og tekur Haraldur undir það í Morgunblaðinu.

„Það er alveg rétt,“ segir Haraldur í Morgunblaðinu í dag . „Við vísum bara í þær óformlegu viðræður sem áttu sér stað við þá á sínum tíma. Við nefnum hins vegar aldrei í okkar svörum að við höfum verið að ræða við stjórnvöld um kaup á safninu heldur að við höfum rætt við stjórnvöld um þessa óvenjulegu uppsetningu og ýmislegt sem tengist þessum málum.“