Kauphöll Nasdaq á Íslandi hefur samþykkt umsókn Arion banka hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar næstkomandi föstudag 15. júní. Þó er það með þeim fyrirvara að samþykkið gæti verið dregið til baka ef ekki næst fullnægjandi dreifing á bréfum bankans í uppgjöri hlutafjárútboðsins á mánudag, 18. júní.
Þann sama dag verða sænsk heimildarskírteini („SDR’s“) tekin til viðskipta á Nasdaq Stockholm. Samþykkið er eins og áður segir háð því að Kauphöllinni hafi borist fullnægjandi staðfesting á dreifingu hlutafjár. Áætlað er að uppgjöri hlutabréfaútboðs Arion banka ljúki þann 18. júní 2018.
Komi í ljós við uppgjör hlutabréfaútboðsins að skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga um dreifingu hlutafjár hafi í reynd ekki verið uppfyllt áskilur Kauphöllin sér rétt til þess að draga samþykki sitt fyrir umsókn félagsins um töku hlutabréfa til viðskipta til baka.
Til og með 18. júní eru viðskipti með hlutabréf Arion banka skilyrt því að samþykki Kauphallarinnar verði ekki dregið til baka, sbr. umfjöllun um skilyrt viðskipti (e. conditional trading) í lýsingu Arion banka. Verður þetta í fyrsta sinn sem þetta fyrirkomulag er viðhaft við töku hlutabréfa til viðskipta á Íslandi, en þetta fyrirkomulag er algengt innan annarra kauphalla Nasdaq Nordic.
Frá töku hlutabréfanna til viðskipta og til og með 18. júní 2018 verða bréf félagsins merkt í viðskiptakerfi Kauphallarinnar með kóðanum WI („When Issued“) til þess að vekja athygli á þessari stöðu. Frekari upplýsingar um útboðið má finna í kafla E.3 í samantekt lýsingar Arion banka.
Leiðarar, pistlar og skoðanadálkar um Arion banka:
- 29. maí 2018 - Að fleygja barninu með baðvatninu
- 29. apríl 2018 - Ein dýrasta starfsþjálfunin
- 29. mars 2018 - Hversu söluvænir eru bankarnir?
Fleiri fréttir um málefni Arion banka:
- 10. júní 2018 - Stefna Arion vegna United Silicon
- 2018 - Ófullnægjandi áhættustýring hjá Arion
- 6. júní 2018 - Pantanabók fyrir hluti í Arion orðin full
- 24. maí 2018 - Dæmdur til að greiða Arion 52 milljónir
- 17. maí 2018 - Ríkið fellur frá forkaupsrétti á Arion
- 17. maí 2018 - Selja að minnsta kosti fjórðung í Arion
- 12. maí 2018 - Bankar í tilvistarkreppu?
- 9. maí 2018 - Starfsmenn fá allt að milljón í kaupauka
- 9. maí 2018 - Ekki söluvænt uppgjör
- 2. maí 2018 - Kaupþing selji fyrst um 30% í Arion
- 2. maí 2018 - Hagnaður Arion dregst saman um 42%
- 18. apríl 2018 - 23 milljarða kröfur í United Silicon
- 14. apríl 2018 - Endurvekja einkennisbúninga
- 16. mars 2018 - Arion framselur atkvæðisrétt í VÍS
- 15. mars 2018 - Engin arðgreiðsla úr Arion
- 14. mars 2018 - Herdís Fjeldsted í stjórn Arion
- 11. mars 2018 - Vilja banna greiðslu Valitor í arð
- 10. mars 2018 - Útboð Arion haldi niðri hlutabréfaverði
- 10. mars 2018 - Áhyggjur af arðsemi Arion
- 8. mars 2018 - Lokakaflinn að hefjast
- 8. mars 2018 - Arion banki lokar útibúum
- 26. febrúar 2018 - Ríkið fær samtals 31 milljarð
- 21. febrúar 2018 - Eign Taconic í Kaupþingi þrefaldast
- 15. febrúar 2018 - Vilja hlut ríkisins á 23,4 milljarða
- 15. febrúar 2018 - Arion kaupir 9,5% í sjálfum sér
- 14. febrúar 2018 - Arion hagnaðist um 14,4 milljarða
- 14. febrúar 2018 - Goldman Sachs bætir við sig í Arion
- 13. febrúar 2018 - Kaupþing selur sjóðum 5% í Arion banka
- 12. febrúar 2018 - Staðfesta tillögu um arðgreiðslu
- 12. febrúar 2018 - Ætla ekki að kaupa í Arion
- 7. febrúar 2018 - Gildi vilji ekki kaupa í Arion
- 6. febrúar 2018 - Arion greiði milljarða í arð fyrir sölu
- 31. janúar 2018 - Fengju hlutinn á 23 milljarða
- 25. janúar 2018 - Vilja kaupa hlut ríkisins í Arion
- 16. janúar 2018 - Kaupþing býður lífeyrissjóðum Arion á ný