Ríflega 1 milljarðs króna hagnaður á fyrsta ársfjórðungi ársins í fyrra hefur snúist í tæplega 2,2 milljarða króna tap á sama tíma í ár. Þar af var tap af því sem bankinn kallar áframhaldandi starfsemi samstæðunnar tæplega 1,3 milljarðar króna. Arðsemi eigin fjár fór úr því að vera 2,1% í að vera neikvæð um 4,6% í heild, og 2,7% af þessari svokölluðu áframhaldandi starfsemi.

Bankinn segir útbreiðslu kórónuveirufaraldursins sem veldur Covid 19 hafa haft áhrif á bankann líkt og á efnahagslíf landsins, til að mynda hafi fjármunatekjur verið neikvæðar um tvo miljlarða, hrein virðisbreyting hafi verið neikvæð um hátt í þrjá milljarða og svo hafi verið tæplega milljarðs króna tap af áðurnefndri aflagðri starfsemi.

Síðarnefnda tapið, sem nemur 889 milljónum króna, kemur til vegna taprekstrar Valitor og matsbreytinga á dótturfélögunum Sólbjargi og Stakksbergi, en öll félögin séu til sölu.

Heildareignir námu 1.188 milljörðum króna í lok mars 2020, samanborið við 1.082 milljarða króna í árslok 2019. Lausafé bankans jókst þar sem ekki varð af fyrirhugaðri 10 milljarða króna arðgreiðslu, bankinn gaf út skuldabréf undir viðbótar eiginfjárþætti 1 í febrúar og innlán jukust. Lán til viðskiptavina hækkuðu lítillega frá áramótum, aðallega húsnæðislán.

Innlán jukust um 9,4% frá áramótum en bankinn hefur lagt áherslu á innlán í fjármögnun sinni. Heildar eigið fé í lok mars nam 184 milljörðum króna, samanborið við 190 milljarða króna í árslok 2019 en lækkunin er einkum tilkomin vegna áframhaldandi kaupa á eigin bréfum bankans á fyrsta ársfjórðungi 2020. Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 27,5% í lok mars 2020 en var 24,0% í árslok 2019.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka segir afkomuna markast mjög af Covid 19 heimsfaraldrinum.

„Afkoman á fjórðungnum er neikvæð um rúmlega tvo milljarða króna einkum vegna þátta sem tengjast Covid-19 svo sem þróunar verðbréfamarkaða og efnahagslífsins almennt. Markaðsvirði hlutabréfaeignar bankans lækkaði um rúma tvo milljarða króna, niðurfærslur lána námu um þremur milljörðum, eða um 0,38% af lánasafni bankans, og neikvæð áhrif félaga til sölu námu um einum milljarði króna. Niðurfærslur lána eru að mestu tilkomnar vegna væntinga um erfiðleika í efnahagslífinu og þar með auknum líkum á vanskilum.

Lánasafn bankans er sem fyrr vel dreift á milli lána til einstaklinga og fyrirtækja, en um 91% af útlánum bankans eru tryggð með veðum, þar af 70% með veðum í fasteignum. Kjarnastarfsemi bankans þróast með nokkuð jákvæðum hætti á ársfjórðungnum borið saman við fyrsta ársfjórðung 2019 þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Til að mynda eykst vaxtamunur bankans, tekjur af kjarnastarfsemi aukast um 9% og rekstrarkostnaður dregst saman um 10%. Áhersla á grunnstoðir í rekstri bankans heldur áfram og fjárhagsleg markmið hafa ekki breyst þó mögulega sé lengra í að þau náist.

Við höfum aðstoðað viðskiptavini okkar síðustu vikur og mánuði og gert okkar besta til að hjálpa þeim að bregðast við þeim einstæðu aðstæðum sem Covid-19 hefur leitt af sér. Einstaklingar hafa fyrst og fremst óskað eftir greiðsluhléi íbúðalána og höfum við komið til móts við óskir hátt í tvö þúsund viðskiptavina um greiðsluhlé. Eru nú rúmlega 11% lána bankans til einstaklinga í greiðslufrystingu. Við höfum jafnframt lagt áherslu á að vera í góðu sambandi við forsvarsfólk fyrirtækja til að fara yfir stöðu mála og horfur og hafa fjölmörg fyrirtæki óskað eftir frystingu lána. Við höfum gert okkar besta til að koma til móts við þau og eru nú um 9% lána til fyrirtækja í frystingu. Alls hefur bankinn því fryst um 10% af lánasafni sínu.

Aðdáunarverður árangur hefur náðst í baráttu við Covid-19 veiruna hér á landi sem er á undanhaldi. Efnahagslegar afleiðingar veirunnar eru enn að koma fram og eru þær einhverjar þær harkalegustu sem við höfum séð á seinni tímum. Ef að líkum lætur þá má gera ráð fyrir að nokkuð sé í að ferðaþjónusta hér á landi taki við sér og nái fyrri hæðum með jákvæðum áhrifum fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Arion banki mun áfram leggja sitt af mörkum og styðja við sína viðskiptavini. Útgáfa bankans í febrúar á skuldabréfi undir viðbótareiginfjárþætti 1 sem og ákvörðun stjórnar bankans um að falla frá endurkaupastefnu og útgreiðslu arðs  gera að verkum að eiginfjár- og lausafjárstaða bankans er óvenju sterk og 27,5% eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) hærra en nokkru sinni. Þriðjungur af eigin fé bankans, eða um 63 milljarðar króna, er umfram lögboðið lágmark og er bankinn því vel í stakk búinn til að takast á við þær aðstæður sem nú eru uppi.“