Fjámrálaeftirlitið hefur heimilað yfirtöku Arion banka á Sparisjóði Ólafsfjarðar. Í tilkynningu á vefsíðu FME kemur fram að Arion taki við öllum réttindum og skyldum sparisjóðsins og að félögin verði sameinuð undir nafni Arion.

Arion banki reyndi að selja Sparisjóð Ólafsfjarðar í september 2011. Þá bárust hins vegar engin tilboð og var ákveðið að taka sjóðinn yfir.