Arion banki hyggst óska eftir því við skiptastjóra að áframhaldandi rekstur Sigurplasts verði tryggður. Í fréttatilkynningu segir að þannig hefur bankinn fullan hug á að taka þátt í endurreisn fyrirtækisins,  tryggja  störf þeirra starfsmanna sem að framleiðslunni koma og áframhaldandi viðskipti viðskiptavina félagsins. „Ef skiptastjóri fellst á aðkomu Arion banka um endurreisn félagsins, hyggst Arion banki selja félagið í opnu söluferli síðar. Bankinn mun kynna nýja tilhögun á rekstri Sigurplasts nánar ef samkomulag næst við skiptastjóra félagsins," segir í tilkynningunni.

Forsvarsmenn Sigurplasts ehf. hafa óskað eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. Arion banki er einn stærsti kröfuhafinn og er jafnframt eigandi þriðjungs hlutafjár félagsins. „Forsvarsmönnum Sigurplasts hefur lengi verið ljóst að bankinn vill endurskipuleggja fjárhag félagsins, skjóta traustari stoðum undir rekstur þess og bjarga þar með þeim störfum sem í húfi eru."   Sigurplast hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota og skiptastjóri hefur ekki verið skipaður. Gert er ráð fyrir því að héraðsdómur taki beiðni forsvarsmanna félagsins fyrir á allra næstu dögum og skipi félaginu skiptastjóra.