Arkís arkitektar ehf. hlutu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík.

Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins en dómnefnd kynnti þær tillögur sem bárust við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Síðar í mánuðinum verður opnuð sýning á tillögunum á Háskólatorgi.

Innanríkisráðuneytið bauð í ársbyrjun til opinnar hugmyndasamkeppni um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Dómnefnd bárust alls 18 tillögur, átta frá innlendum aðilum og tíu tillögur erlendis frá. Í dómnefnd sátu Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Páll Winkel fangelsismálastjóri skipaður af ráðherra, Pétur Örn Björnsson arkitekt skipaður af ráðherra og tilnefnd af hálfu Arkitektafélags Íslands Gylfi Guðjónsson og Hildur Gunnarsdóttir arkitektar.

Fyrstu verðlaun í samkeppninni fékk tillagan frá arkitektastofunni Arkís, höfundar hennar eru Björn Guðbrandsson og Arnar Þór Jónsson arkitektar. Ráðgjafar voru Birgir Teitsson, Egill Guðmundsson og Friðrik Friðriksson arkitektar. Önnur verðlaun hlaut tillaga frá Arkitektur.is og þriðju verðlaun hlaut tillaga frá Teiknistofunni Tröð ehf.

Á vef innanríkisráðuneytisins kemur fram að nýja fangelsið verður með 56 fangarýmum og á að leysa af hólmi Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og fangelsi í Kópavogi en báðum þessum fangelsum verður lokað þegar hið nýja verður tekið í gagnið. Þá er og gert ráð fyrir að gæsluvarðhaldsdeild á Litla-Hrauni verði lögð niður og aðstaða hennar tekin fyrir afplánun. Gert er ráð fyrir að hönnun byggingarinnar og útboðsgögn verði tilbúin vorið 2013 og í kjölfarið geti framkvæmdir hafist. Vorið 2015 er stefnt að því að ljúka framkvæmdum og taka bygginguna í notkun.