Kauphöll Íslands tilkynnti í dag að ARM Verðbréf hf. hefðu verið samþykkt sem viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser) á First North Iceland. Þannig er fyrirtækið orðið viðurkenndur ráðgjafi fyrirtækja við skráningu verðbréfa á hlutabréfa- og skuldabréfamarkað First North Iceland og á meðan viðskipti eru með verðbréf viðkomandi fyrirtækja á markaðnum.

„Markaðurinn er ekki bara fyrir stór fyrirtæki enda er drifkraftur nýsköpunar og hagvaxtar hjá smáum og meðalstórum fyrirtækjum. Skráning á First North getur aukið verðmætasköpun fyrirtækja og við erum ánægð að vera komin í hóp aðila sem eru viðurkenndir ráðgjafar á First North Iceland,“ segir Karl Þorsteins, hjá ARM Verðbréfum.

„Við erum afar ánægð með að ARM Verðbréf skuli vera gengið í raðir viðurkenndra ráðgjafa og bjóðum fyrirtækið hjartanlega velkomið í hópinn“, sagði Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs NASDAQ OMX Iceland. „Vitund er að aukast um mikilvægi betri aðgangs að fjármagni fyrir fyrirtæki í vexti. Framfaraskref kunna að vera skammt undan í þeim efnum og First North getur þar gegnt lykilhlutverki og aukið tækifærin svo um munar. Það er ánægjulegt fyrir þessi fyrirtæki að ARM Verðbréf hafi nú bæst í hóp þeirra ráðgjafa sem geta veitt þeim faglega ráðgjöf fyrir skráningu á First North.“