Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, hefur tilkynnt um að hann ætli ekki að sækjast eftir endurkjöri í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. .

„Síðustu 25 ár hef ég helgað mig bæjarmálunum í Kópavogi. Ég var kjörinn bæjarfulltrúi árið 1998 og hef verið bæjarstjóri frá árinu 2012 en ég tel nú tímabært að stíga til hliðar og að annar taki við keflinu,“ segir Ármann í tilkynningu.

Hann segir að á þessum tíma hafi Kópavogur tekið miklum breytingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvöfaldast og telur nú um 40.000 manns.

„Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálfstæðisflokknum í gegnum þær umbreytingar sem hafa átt sér stað í Kópavogi og hafa leitt flokkinn síðustu 12 ár. Ég hef ávallt haft þá sýn að góður rekstur og ábyrg fjármálastjórn sé undirstaða blómlegs vaxtar bæjarfélagsins og er þeirrar skoðunar að það skýri þá sterku stöðu sem bærinn nýtur núna.

Á þeim tíma sem ég hef setið í bæjarstjórn Kópavogs hef ég kynnst og átt samleið með fjölda fólks. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka Kópavogsbúum öllum, öflugu og góðu starfsfólki Kópavogsbæjar, Sjálfstæðisfólki í Kópavogi fyrir þeirra ómetanlega og óeigingjarna starf, pólitískum fulltrúum allra flokka í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu og þeim fulltrúum fyrirtækja og félagasamtaka sem ég hef kynnst og unnið með í gegnum tíðina,“ segir Ármann.

Ármann verður þar með fjórði bæjarstjóri sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu sem hættir eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Fyrir höfðu Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, tilkynnt um að þau hygðust ekki taka þátt í kosningunum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnafjarðar, munu hins vegar bæði sækjast eftir endurkjöri.