Áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnin verða efni umræðna á aðalfundi SA 3. maí nk., að loknum ræðum formanns SA og Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Þátttakendur verða þau Ármann Þorvaldsson framkvæmdastjóri fyrirtækja-ráðgjafar KB banka, Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group, Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis hf., Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri FL Group og Svafa Grönfeldt fram-kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Actavis Group.

Umræðunum stýrir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2.