Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir til starfa hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Ármann Þorvaldsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Virðingar. Ármann mun í upphafi einkum einbeita sér að uppbyggingu og öflun verkefna á sviði fyrirtækjaráðgjafar. Þá mun hann jafnframt koma að enn frekari uppbyggingu félagsins og tekjuöflun á öllum sviðum.

Ármann útskrifaðist með MBA frá Boston University árið 1994 og er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann var framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings frá árinu 1997 til ársins 2005 og framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi frá 2005 til ársins 2008. Hann hefur á undanförnum árum starfað sem framkvæmdastjóri hjá fasteignalánafélaginu Ortus Secured Finance í London, en verður nú stjórnarformaður þess félags.

Margit Robertet hefur verið ráðin framkvæmdastjóri framtakssjóða Virðingar. Þar eru reknir tveir framtakssjóðir (e. Private equity), Auður I og Edda. Auður I á eignarhluti í Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni, Já.is, 365, Íslenska gámafélaginu, Yggdrasil og Gagnavörslunni.  Edda hefur fjárfest í þremur félögum; Securitas, Domino´s pizza og Íslandshótelum.

Margit útskrifaðist með MBA frá Rotterdam School of Management árið 1993 og er með BS gráðu í viðskiptum frá University of Colorado.  Margit hefur starfað hjá Virðingu og áður Auði Capital frá árinu 2007.

Hjá Auði Capital starfaði hún sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og hefur frá byrjun árs 2014 verið starfandi á framtakssjóðasviði. Á árunum 2005 til 2007 var hún framkvæmdastjóri lánasviðs Straums fjárfestingabanka.  Á árunum 1993 til ársins 2005 starfaði hún hjá Credit Suisse First Boston í París og hjá Barclays í London.  Á þeim tíma var hún bæði starfandi á sviði fyrirtækjaráðgjafar sem og  markaðsviðskipta.

„Virðing stefnir alltaf að því að vera með hæfasta starfsfólkið á fjármálamarkaði í sínum röðum og  Ármann og Margit fylla svo sannarlega þann flokk. Það eru spennandi tímar framundan á þessum kröfuharða markaði  og ráðning þessara tveggja afar hæfu einstaklinga er þáttur í þeirri uppbyggingu sem framundan er hjá Virðingu,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar.