Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að ráða Örnu Schram í starf forstöðumanns almannatengsla Kópavogsbæjar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Arna er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur starfað við blaðamennsku um árabil, lengst af á Morgunblaðinu sem stjórnmálafréttamaður og pistlahöfundur, en einnig á Krónikunni sem aðstoðarritstjóri og nú síðast á Viðskiptablaðinu sem fréttastjóri.

Undanfarna mánuði hefur hún starfað við upplýsinga- og kynningarmál hjá Háskólanum í Reykjavík.