Nýjasta bók spennusagnahöfundarins Arnaldar Indriðasonar, Einvígið , er komin í fyrsta sæti á metsölulista Rannsóknarseturs verslunarinnar fyrir síðustu viku.

Listinn er nú tekinn samana vikulega og birtur á vef Rannsóknarsetursins.

Einvígið fór beint í þriðja sæti listans í síðustu viku en hún kom út þann 1. nóvember sl. Í öðru sæti listans er bókin Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir sænska rithöfundinn Jonas Jonasson, en hún var í efsta sæti listans í síðustu viku. Sú bók er jafnframt mest selda bókin hér á landi það sem af er ári.

Í þriðja sæti listans yfir metsölubækur í síðustu viku er Stóra Disney köku- og brauðbókin en hún er jafnframt þriðja mest selda bókin það sem af er ári. Í öðru sæti yfir mestu seldu bækurnar á árinu er bókin Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur.

Sjá listann í heild sinni.

Einvígið, nýjasta bók Arnalds Indriðasonar.
Einvígið, nýjasta bók Arnalds Indriðasonar.