Furðustrandir eftir Arnald Indriðason var vinsælasta bókin í síðustu viku, aðra vikuna í röð.

Þá var skáldsagan Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur í öðru sæti og Léttir réttir Hagkaups eftir Friðriku Hjördísi Geirsdóttur í þriðja sæti.

Þetta kemur fram í vikulegu yfirliti Rannsóknarseturs verslunarinnar þar sem birtur listi yfir söluhæstu bækurnar hér á landi. Metsölulistinn, sem síðast var birtur í gær, er birtur vikulega fram að jólum og byggir á upplýsingum frá  flestum bókaverslunum landsins og öðrum verslunum sem selja bækur (t.d. stórmörkuðum, bensínstöðvum o.fl.).

Ævisaga Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson var í fjórða sæti listans og Lífsleikni Gillz eftir Egil Einarsson var í fimmta sæti. Þannig er listinn yfir fimm söluhæstu vikurnar óbreyttur sl. tvær vikur.

Furðustrandir er jafnframt mest selda bókin þar sem af er ári en þar á eftir koma Léttir réttir Hagkaups og Stóra Disney matreiðslubókin sem hélt toppsætinu langt fram eftir hausti.

Hér að neðan má sjá listann yfir mestu seldu bækurnar í síðustu viku auk metsölulistans það sem af er ári.

Metsölulisti 13. desember - 19. desember 2010

  1. Furðustrandir - Arnaldur Indriðason
  2. Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir
  4. Gunnar Thoroddsen - Guðni Th. Jóhannesson
  5. Lífsleikni Gillz - Egill Gillz Einarsson
  6. Eldað með Jóa Fel  - Jóhannes Felixson
  7. Þokan  - Þorgrímur Þráinsson
  8. Svar við bréfi Helgu - Bergsveinn Birgisson
  9. Bók fyrir forvitnar stelpur! - Þóra Tómasdóttir/Kristín Tómasdóttir
  10. Ertu Guð afi? - Þorgrímur Þráinsson

Uppsafnaður metsölulisti tímabilið 1. janúar - 19. desember 2010

  1. Furðustrandir - Arnaldur Indriðason
  2. Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir
  3. Stóra Disney matreiðslubókin - Ýmsir höfundar
  4. Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir
  5. Eyjafjallajökull - Ari Trausti Guðmundsson & Ragnar Th. Sigurðsson
  6. Gunnar Thoroddsen - Guðni Th. Jóhannesson
  7. Rannsóknarskýrsla Alþingis - Rannsóknarnefnd Alþingis
  8. Bók fyrir forvitnar stelpur! - Þóra Tómasdóttir/Kristín Tómasdóttir
  9. Borða, biðja, elska - Elizabeth Gilbert
  10. Þokan - Þorgrímur Þráinsson