Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur fjármála- og efnahagsráðherra. Hann verður annar tveggja aðstoðarmanna en auk hans starfar Kolbeinn Marteinsson sem aðstoðarmaður ráðherra.

„Arnar var aðstoðarmaður iðnaðarráðherra 2009 til 2011 og gegndi formennsku í Auðlindastefnunefnd ríkisstjórnarinnar og nefnd um lagaramma orkumála. Arnar hefur starfað sem verkefnastjóri hjá fjárfestingarsviði Íslandsstofu síðustu ár. Hann starfaði áður hjá hagdeild og greiningardeild Landsbanka Íslands, Fjárfestingarstofu og Útflutningsráði, Aflvaka – atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og Alþýðusambandi Íslands,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Arnar lætur af störfum hjá fjárfestingarsviði Íslandsstofu meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns fjármála- og efnahagsráðherra.

Arnar er 47 ára og er með meistaragráðu í þverfaglegum menningarfræðum frá Birmingham háskóla 1994 og BA í fjölmiðlafræði og bókmenntum frá HÍ 1990. Stúdent 1985 úr hagfræðideild Verzlunarskóla Íslands.

Arnar er í sambúð með Guðrúnu Katrínu Bryndísardóttur og eiga þau dæturnar Öglu og Emblu.“