Arnar Jónsson hefur verið ráðinn til hugbúnaðarfyrirtækisins Smartmedia sem sölustjóri veflausna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að Arnar sé ráðinn inn til að leiða sölu til nýrra viðskiptavina á vaxandi tímum netverslunar. Hann hafi lokið B.A í hagfræði og M.Sc í nýsköpun og viðskiptaþróun frá Háskóla Íslands og frá þeim tíma hafi hann samhliða starfað hjá Dattaca Labs, Toyota og Íslandsbanka ásamt eigin frumkvöðlaverkefnum.

Arnar kveðst mjög spenntur fyrir að koma inn núna og vinna hjá Smartmedia og aðstoða fyrirtæki við að setja upp netverslanir og þjónusta núverandi viðskiptavini. „Það eru mörg tækifæri til að bæta þjónustu sína á netinu og um leið gera sig sýnilegra á vefnum þar sem umferðin er mikil og eykst stöðugt," segir hann.

„Það er frábært að fá Arnar til liðs við okkur og hann á eftir að smellpassa í þetta hlutverk. Það er mikill vöxtur í þessum geira um þessar mundir og hann mun koma til með að styðja við vöxt og þróun núverandi viðskiptavina ásamt því að bjóða nýja velkomna og vinna með þeim,“ segir Hjörvar Hermannsson, framkvæmdastjóri Smartmedia.