Arne Vagn hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri hjá Stapa lífeyrissjóði. Arne Vagn lauk prófi í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri 1997 og stundaði MBA nám við Copenhagen Business School á árunum 2003-2004 og hefur lokið prófum í verðbréfaviðskiptum.

Arne Vagn hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1999, bæði við framtaksfjárfestngar og eignastýringu hjá Íslenskum verðbréfum hf.