Arngrímur Guðmundsson hefur verið ráðinn sem flugverndarstjóri á flugrekstrarsviði WOW air. Arngrímur er fæddur árið 1966 og lauk prófi frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja árið 1986 og lögregluskóla ríkisins 1994.

Hann starfaði hjá embætti sýslumannsins í Keflavík sem lögreglumaður og síðar rannsóknarlögreglumaður til ársins 2001 er hann hóf störf hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar sem aðstoðarframkvæmdarstjóri og síðar sem framkvæmdarstjóri öryggissviðs Keflavíkurflugvallar til ársins 2009.  Arngrímur var þar virkur í alþjóðlegu samstafi vegna flugverndarmála og flugöryggismála og var hann m.a. formaður NBSAG um 4 ára skeið.

Frá árinu 2009  til ársloka 2010 starfaði hann hjá NATO sem yfirmaður flugverndarmála á alþjóðaflugvellinum í Kabul í Afganistan. Hann starfaði fyrir landamæradeild lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli árið 2011. Arngrímur hefur starfað hjá embætti sérstaks saksóknara sem lögreglufulltrúi frá árinu 2012.