Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson skrifaði á dögunum bréf til Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, þar sem hann fór fram á að hann drægi til baka ummæli um sig, sem höfð voru eftir honum í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis (RNA) um bankahrunið. Árni hefur nú svarað Björgólfi þar sem hann greinir frá breyttri skoðun sinni á málsatvikum. Þetta kemur fram á vefsíðu Björgólfs Thors .

Þar segir að í skýrslu RNA hafi verið haft eftir Árna að allir stjórnendur baknanna hafi vísvitandi logið að stjórnvöldum þar sem Björgólfur hafi verið sá versti. Hann hafi sagt ósatt líka og þeir sagt ráðherranum að ekkert væri að marka það sem hann segði. Þessar lýsingar hafi svo aftur skotið upp kollinum í bók Árna, Frá bankahruni til byltingar, sem gefin var út haustið 2010.

„Eins og við mátti búast voru þessar lýsingar gripnar á lofti af fjölmiðlum og hafa valdið mér ómældum vanda. Það er illt að sitja undir ásökunum um að hafa komið óheiðarlega fram á ögurstundu,“ skrifar Björgólfur Thor.

Björgólfur segist hins vegar hafa gert sér grein fyrir að síðustu helgina fyrir bankahrun hafi mikið mætt á fjármálaráðherra og erfitt væri að greina hið rétta í hita leiksins. „Ég var hins vegar sannfærður um að Árni væri sá drengskaparmaður að hann væri reiðubúinn til að endurskoða ummæli sín, í ljósi þeirra upplýsinga sem komið hafa fram á síðustu árum um raunverulega stöðu mála á síðustu dögum fyrir hrun og hver hefði sagt þar satt og rétt frá.“

Sem fyrr segir fékk Björgólfur svar frá Árna sem hann birtir í heild sinni. Það er eftirfarandi:

Sæll Björgólfur Thor,

Varðandi ummæli mín við yfirheyrslur hjá Rannsóknarnefnd Alþingis hefur þróun mála eftir hrun breytt skoðun minni á þeirri atburðarás sem  ummælin fjalla um. Ég met það svo að staða þín hafi þá verið fjárhagslega sterkari en ég hélt og mat þitt á stöðu Kaupþings betra heldur en annarra og því ekki verið  ástæða fyrir mig að ætla að þú hafir verið að segja ósatt um möguleika þína á því að afla fjár fyrir nýjan sameinaðan banka. Örlög Kaupþings dagana á eftir sýna hinsvegar að þeir fjármunir hefðu tapast og  ekki dugað til  björgunar úr því sem komið var á þeim tíma.

Mér  þykir afar leitt ef ummæli mín hafa valdið þér vandræðum og alveg sjálfsagt að þú birtir þetta svar mitt á heimasíðu þinni.

Bestu kveðjur,

Árni M. Mathiesen“