Árni Magnússon, fyrrverandi félagsmálaráðherra, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Orku hjá Mannviti frá og með 15. mars næstkomandi og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Árni tekur við framkvæmdastjórastarfinu af Sigurði St. Arnalds sem lætur af starfinu að eigin ósk en mun áfram starfa við markaðsstörf og sem ráðgjafi Mannvits í orkumálum.

Fram kemur í tilkynningu frá Mannviti að Árni hefur síðastliðin sjö ár stýrt starfsemi Íslandsbanka á sviði endurnýjanlegrar orku, bæði innanlands og utan. Árni hefur mikla og fjölþætta reynslu af alþjóðlegum viðskiptum, samningagerð, markaðssetningu og fyrirlestrum á sviði endurnýjanlegrar orku sem og af samstarfi við íslensk orkufyrirtæki og aðila í þjónustu við þau. Hann situr í stjórn Samtaka jarðvarmafyrirtækja í Bandaríkjunum (Geothermal Energy Association – GEA) og sömuleiðis í Leiðtogaráði ameríska endurnýjanlega orkuráðsins (American Council on Renewable Energy – ACORE). Þá hefur hann setið í fagráði Jarðvarmaklasans og er í stjórn íslensk- ameríska verslunarráðsins í New York.

Áður en Árni hóf störf hjá Íslandsbanka var hann alþingismaður og félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á árunum 2003 til 2006.