Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar hefur verið kosinn í stjórn European Regions Airline Association (ERA).

ERA eru hagsmunasamtök 50 flugfélaga í Evrópu og yfir 120 samstarfsaðila þeirra, m.a. flugvalla, flugvélaframleiðenda og þjónustufyrirtækja. ERA hefur í yfir þrjá áratugi unnið að því að bæta umhverfi flugfélaga og þeirra sem koma að flugrekstri.