Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands, var kosinn á aðalfundi þann 3. apríl sl. formaður SAF, en Jón Karl Ólafsson, sem hafði gegnt formennsku síðastliðin 5 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Árni hefur starfað í ferðaþjónustu í fjölmörg ár og var á síðasta ári formaður flugnefndar SAF.