Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis hefur ákveðið að segja sig úr skilanefndinni frá og með 1. október næst komandi. Til að tryggja sem mesta samfellu í starfsemi Glitnis hefur Árni fallist á þá ósk slitastjórnar að sitja áfram í stjórn Íslandsbanka og að aðstoða við söluferli á eignarhlut í bankanum, að því er kemur fram í tilkynningu. Auk þess mun hann gegna tilfallandi störfum sem slitastjórnin kann að óska eftir vegna fyrri starfa hans fyrir Glitni.

Árni sendi samstarfsmönnum hjá Glitni orðsendingu í dag og er hluti hennar birtur í tilkynningunni. Þar segir hann meðal annars að hann telur svigrúm til að fækka fulltrúum í skilanefndinni, og flýta þannig fyrir ferlinu að skilanefndin ljúki störfum eigið síðar en 1. janúar 2012.

„Vegna þeirrar ákvörðunar Árna Tómassonar að hverfa nú úr skilanefnd Glitnis vill slitastjórn bankans nota þetta tækifæri til að þakka honum vel unnin störf í þágu Glitnis á miklum umbrotatímum undanfarin þrjú ár,“ segir í tilkynningunni, sem Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar bankans, ritar undir.

Úr bréfi Árna til starfsmanna:

„Alþingi samþykkti í júní 2011 breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki þar sem ákveðið var að verkefni skilanefnda falli til slitastjórna ekki síðar en 1. janúar 2012 og að skilanefndin ljúki þar með störfum.  Frá því að þetta var ákveðið hefur verið unnið að því að færa verkefni frá skilanefnd yfir til slitastjórnar, með þeim hætti að sem minnst truflun verði á starfsemi Glitnis.  Þar sem tilflutningur verkefna frá skilanefnd til slitastjórnar Glitnis hefur gengið vel tel ég nú svigrúm til að fækka fulltrúum í skilanefnd Glitnis og flýta þannig því ferli sem Alþingi hefur ákveðið með fyrrgreindri breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Því hef ég ákv eðið að segja mig úr skilanefnd Glitnis frá og með 1. október nk.“