Klapparás, félag í eigu Árna Haukssonar stjórnarmanns í Dagsbrún, hefur selt alla hluti félagsins í Dagsbrún, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Andvirði viðskiptanna er 575,6 milljónir króna. Um er að ræða 85.659.813 hluti sem seldir voru á genginu 6,72 krónur hlut.

Aðilar fjárhagslega tengdir Árna eiga 228.728.866 hluti eftir viðskiptin.