Klapparás ehf., félag í eigu Árna Haukssonar, seldi fyrir 101,4 milljónir króna í Dagsbrún, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.
Um er að ræða 20.000.000 hluti á genginu 5,07 krónur á hlut.
Eftir viðskiptin eiga fjárhagslega tengdir aðilar 140.110.206 hlut í félaginu.