Árni Helgason hefur ráðið sig til starfa hjá lögfræðistofunni JS-lögmenn og mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins nú um mánaðarmótin.

Árni er lögfræðingur að mennt og hefur starfað fyrir þingflokkinn í rúm tvö ár, eða frá því í júní 2007 segir á heimasíðu flokksins.