Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Árni Huldar starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KPMG.

Árni Huldar hefur síðastliðin 15 ár starfað á fjármálamarkaði. Hóf hann störf á bankasviði Fjármálaeftirlitsins árið 2006 en þaðan fór hann til Íslandsbanka og svo til Lykils fjármögnunar. Árni Huldar hefur í þessum störfum sínum fengið mikla innsýn í starfsemi fjármálafyrirtækja og viðskiptavina þeirra sem nýtist sérstaklega vel í því þjónustuframboði sem KPMG Law hefur fram að færa. Sérþekking hans á regluverki fjármálafyrirtækja og eftirlits, lánastarfsemi, fjármögnun, starfsleyfismálum, virkum eignarhlutum, samrunum, yfirtökum og endurskipulagningu ásamt stjórnarháttum mun breikka og dýpka þekkingu lögmannsstofunnar enn frekar og gera okkur betur kleift að veita viðskiptavinum víðtækari þjónustu.

Hjá KPMG Law starfa á þriðja tug lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. KPMG Law hefur á að skipa reyndum sérfræðingum með víðtæka þekkingu á sviði skattaréttar, reikningsskila, félagaréttar, samningaréttar, fjármálaréttar, samkeppnisréttar og kröfuréttar.

„Það er mikill fengur fyrir KPMG Law að fá Árna Huldar til liðs við okkur og mun þekking hans og reynsla af starfsemi fjármálafyrirtækja án efa koma sér vel í störfum hans hjá KPMG Law," segir Soffía Eydís Björgvinsdóttir, meðeigandi KPMG Law.