Árni M. Mathiesen hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri flokksins þann 14. mars næstkomandi vegna alþingiskosninganna.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Árni sendi kjördæmaráðinu á Suðurlandi.

„Á ferðum mínum um kjördæmið að undanförnu hefur berlega komið í ljós að mikill vilji er til breytinga innan Sjálfstæðisflokksins,“ segir Árni í tilkynningunni.

„Þessi afstaða er vel skiljanleg í ljósi þeirra erfiðleika sem þjóðin hefur gengið í gegnum á síðustu mánuðum og misserum. Þó ég sé allur af vilja gerður til þess að bregðast við þessu kalli um breytingar má ljóst vera að því eru takmörk sett hvað ég get gert í þeim  efnum af augljósum ástæðum. Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér Það er hlutverk leiðtoga að leiða en það er líka nauðsynlegt fyrir leiðtoga að vita hvenær á að víkja.“

Þá segir Árni að á átján ára þingferli hafi hann verið 1. þingmaður í þremur kjördæmum og ráðherra í tæp tíu ár í í ráðuneytum sjávarútvegs og fjármála.

„Öllum þeim sem með mér hafa starfað færi ég þakkir fyrir samstarfið,“ segir Árni í tilkynningunni.

„Sérstaklega vil ég þó þakka þeim sem hefðu viljað styðja mig í prófkjörinu í næsta mánuði og vona að ég valdi þeim ekki of miklum vonbrigðum með ákvörðun minni.“