Árni Múli Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Friðrik Sigurðsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra samtakanna síðustu 20 ár, lætur af störfum 1. september næstkomandi og mun Árni Múli þá taka við. Þetta kemur fram á vefsíðu Þroskahjálpar .

Árni Múli er lögfræðingur með sérmenntun í mannréttindalögfræði. Hann hefur starfað sem Fiskistofustofustjóri, bæjarstjóri, skrifstofustjóri í ráðuneyti, á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, hjá umboðsmanni Alþingis og sem lögfræðilegur ráðgjafi. Þá hefur hann unnið að mannréttindamálum hjá Rauða krossinum á Íslandi og hjá Íslandsdeild Amnesty International, m.a. sem formaður stjórnar deildarinnar.

Friðrik mun hins vegar ekki láta af störfum að fullu fyrir samtökin og mun þar áfram sinna sérstökum verkefnum.