Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, voru meðal þeirra sem Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag, en alls voru 14 Íslendingar sæmdir orðu.

Árni Oddur hlýtur orðuna fyrir „framlag til íslensks atvinnulífs og útflutnings á sviði hátækni og nýsköpunar“, en hann hefur hlotið ýmisskonar viðurkenningu fyrir störf sín í forystu alþjóðlega tæknifyrirtækisins – sem hann hefur leitt frá 2013 – síðustu misseri. Um síðustu áramót hlaut hann Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins , og nú um áramótin var hann valinn Viðskiptamaður ársins hjá Fréttablaðinu.

Listinn yfir viðtakendur orðunnar í heild sinni er eftirfarandi:

1. Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og útflutnings á sviði hátækni og nýsköpunar

2. Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar

3. Gestur Pálsson barnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðis barna

4. Guðni Kjartansson fyrrverandi íþróttakennari og þjálfari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og skóla

5. Guðrún Hildur Bjarnadóttir ljósmóðir, Þórshöfn, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð

6. Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeilda Landbúnaðarháskóla Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar garðyrkju og miðlun þekkingar

7. Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor við Háskóla Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði upplýsingafræði og skjalastjórnunar

8. Margrét Bjarnadóttir fyrrverandi formaður fimleikafélagsins Gerplu og Fimleikasambands Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og æskulýðsmála

9. Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leikritunar og bókmennta

10. Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi, Mývatnssveit, riddarakross fyrir framlag til ferðaþjónustu og atvinnulífs í heimabyggð

11. Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar dýra, og störf á vettvangi dýralækninga og sjúkdómavarna

12. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Reykjavík, riddarakross fyrir atbeina undir merkjum samtakanna Indefence og framlag til íslensks atvinnulífs

13. Sigurður Reynir Gíslason rannsóknaprófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra jarðvísinda og kolefnisbindingar

14. Valgerður Stefánsdóttir fyrrverandi forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks táknmáls og jafnréttisbaráttu döff fólks