Hjónin Árni Sólonsson og Svanlaug Þráinsdóttir hafa keypt City Center Hotel af Pétri Þór Sigurðssyni lögmanni.

Árni hefur M.Sc. í hótelstjórnun og kennir hótelstjórnun hér á Íslandi í Hótel- og veitingaskólanum. Spurður hvernig kaupin hafi komið til segist Árni hafa séð hótelið auglýst til sölu og ákveðið að stökkva á það.

„Ég rek nú þegar Capital-Inn sem er staðsett í Fossvogi og hef verið að byggja það upp. Við ákváðum að það væri tími til kominn að bæta aðeins við reksturinn,“ segir Árni.