Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis heldur til Lundúna nk. mánudag til viðræðna við breska þingmenn. Samkvæmt tilkynningu mun nefndin eiga fundi með formanni og fulltrúum úr utanríkismálanefnd neðri deildar breska þingsins og einnig með formanni og fulltrúum úr fjárlaganefnd. Jafnframt munu íslensku þingmennirnir funda með vináttuhópi Íslands og Bretlands sem starfar í breska þinginu.

Tilgangur fundanna er að ræða samskipti ríkjanna, stöðu Icesave-málsins og tengd málefni. Af hálfu utanríkismálanefndar sækja eftirtaldir þingmenn fundina:

  • Árni Þór Sigurðsson, formaður (Vg.)
  • Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður (Samf.)
  • Birgitta Jónsdóttir (Hreyf.)
  • Bjarni Benediktsson (Sjálfstfl.)
  • Gunnar Bragi Sveinsson (Framsfl.)