Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, ætlar að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Kemur þetta í færslu á Facebook síðu hans.

Færslan hljóðar svo í heild sinni:

Ágætu vinir og samherjar. Framundan er val á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Ég hyggst gefa kost á mér til endurkjörs og sækist eftir 1. sæti framboðslistans.

Ég hef hugsað mikið um næstu skref, eftir að ég ákvað að gefa ekki kost á mér til endurkjörs sem formaður flokksins í vor. Enginn á að vera eilífur í stjórnmálum og maður á alltaf við hverjar kosningar að hugsa hvert erindi manns er og meta hvort betra væri að halda til annarra verka.

Tvennt ræður mestu um niðurstöðu mína að þessu sinni: Annars vegar liggur fyrir að tveir góðir félagar með mikla reynslu, þau Katrín Júlíusdóttir og Magnús Orri Schram sem skipuðu 2. og 3. sæti listans síðast, munu hverfa af vettvangi og endurnýjun verður því í öllu falli mikil í efstu sætunum. Það er ágætt að þar sé einhver blanda af nýju fólki og fólki með reynslu. Hins vegar finn ég brennandi þörf til að taka þátt í stjórnmálaumræðunni og halda áfram að berjast fyrir þeim sjónarmiðum sem mér hafa alltaf verið kær: Jafnrétti, frjálslyndi og jöfnum tækifærum á þeim umrótstímum sem við lifum. Mér finnst sérstaklega mikilvægt að takast á við hindurvitni og allra handanna bullugang sem tröllríður stjórnmálaumræðunni og tala fyrir jafnaðarstefnunni og sanngjarnri úrlausn þeirra fjölmörgu verkefna sem okkar bíða. Þegar blikur eru á lofti um allan hinn vestræna heim er mikilvægt að muna að jafnaðarstefnan veitir bestu leiðsögnina til að takast á við efnahagslega óvissu, óréttlæti, einangrunarhyggju og hættu á aukinni misskiptingu.

Flokksvalið fer fram 8.-10. september nk. og allir þeir sem eru félagar í Samfylkingunni eða hafa skráð sig til þátttöku sem stuðningsmenn fyrir 2. september nk. geta kosið. Ég hvet alla áhugasama til að taka þátt í að velja á framboðslistann og skrá sig til þátttöku í gegnum hlekkinn hér fyrir neðan. Ég mun ekki halda úti kosningaskrifstofu, úthringingum eða öðru skipulögðu undirbúningsstarfi heldur gefa nýjum frambjóðendum eftir sviðið. Sjálfur er ég þrautkynntur og þið vitið allt um kosti mína og galla. Vonandi mun svo vel heppnað val á framboðslista hjálpa til við að blása byr í segl Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar.