„Þetta var nú ekki planið hjá mér,“ segir Jóhannes Jónsson, löngum kenndur við Bónus, en hann hefur selt 51% í félaginu Ísland-Verslun sem rekur Iceland-verslanirnar hér á landi. Jóhannes á eftir kaupin 12% hlut í Iceland-félaginu. Kaupandinn er félag í eigu Árna Péturs Jónssonar, sem á klukkubúðirnar 10-11. Jóhannes stígur frá sem framkvæmdastjóri en verður stjórnarformaður Ísland-Verslun. Jóhannes segir í tilkynningu að hann hafi ákveðið að selja hlutinn eftir að veikindi hans hafi tekið sig upp aftur. Hann þurfi að verja tíma sínum og kröftum í að takast á við þau.

Fram kemur í tilkynningu að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fyrsta Iceland-verslunin opnaði hér á landi í lok júlí.

Gangi viðskiptin í gegn eru hluthafar Iceland-verslananna þrír. Félag Árna Péturs og Jóhannesar auk þess sem félag í eigu Iceland Foods í Bretlandi á 37% hlut. Samhliða sölunni lætur Jóhannes Jónsson af störfum sem framkvæmdastjóri félagins og tekur við sem stjórnarformaður.

Í tilkynningunni er haft eftir Jóhannesi:

„Ég mun því ekki geta sinnt þeirri uppbyggingu á Iceland búðunum eins og þarf að gera.  Ég verð því að eftirláta öðrum það verkefni. Ég treysti Árna Pétri fullkomlega fyrir því verkefni. Við höfum unnið saman áður og hann þekkir vel inn á matvörumarkaðinn. Undirbúningur og opnun verslana Iceland hér á landi hefur verið ævintýri líkast og er ég þakklátur þeim miklu og góðu móttökum sem ég hef fengið hjá viðskiptavinum okkar og óska eftir áframhaldandi stuðningi frá þeim. Það er von mín og trú að Iceland eigi eftir að vaxa og styrkjast á íslenska matvörumarkaðinum.“