Árni Stefánsson verður framkvæmdastjóri Bílanausts í kjölfar endurskipulagningar N1. Breytingarnar fela það meðal annars í sér að stofnað verður dótturfélag um Bílanaust.

Árni hefur verið framkvæmdastjóri hjá N1 frá árinu 2008 en hann er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Í kjölfar breytinga verða nokkrar verslanir með varahluti og rekstrarvörur færðar úr nafni N1 undir Bílanaust en hjá fyrirtækinu verða um 60 starfsmenn.