Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að ráða Arnór Sighvatsson aðalhagfræðing bankans sem jafnframt er framkvæmdastjóri hagfræðisviðs bankans. Ráðningin gildir frá 23. júní 2004.

Arnór hefur verið staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands frá 1995 og deildarstjóri á hagfræðisviði bankans, en hann hóf störf í bankanum árið 1990. Um tveggja ára skeið var Arnór aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington. Þá starfaði hann um hríð við háskólakennslu í Bandaríkjunum og vann um skeið á Hagstofu Íslands.

Arnór lauk doktorsprófi í hagfræði árið 1990 frá Northern Illinois University í Bandaríkjunum, en hafði áður lokið mastersprófi þaðan í sömu grein. Arnór hefur ritað fjölda greina í fræðileg og fagleg tímarit um efnahagsmál og peningamál, einn eða í samvinnu við aðra. Meginviðfangsefni Arnórs í þessum greinum hafa verið alþjóðleg efnahagsmál, alþjóðaviðskipti, gengismál og peningamál. Þá hefur Arnór sinnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum fyrir Seðlabanka Íslands.

Arnór er fæddur árið 1956, er kvæntur Eddu Hrönn Atladóttur og eiga þau þrjú börn.

Aðrir umsækjendur um stöðu aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands voru Ásgeir Daníelsson, Jóhann Rúnar Björgvinsson, Þorsteinn Þorgeirsson og Þórarinn G. Pétursson.