Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri sótti vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í Washington í Bandaríkjunum um helgina. Bankinn á aðalfulltrúa í stjórnarnefnd AGS (e. Board of Governors) og er það Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Varafulltrúi í nefndinni er Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Arnór hafi sótt fundi með yfirstjórn og starfsfólki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um málefni Íslands og þróun efnahagsmála á alþjóðavísu. Þá er bent á að í ályktun fjárhagsnefndar AGS (e. IMFC Communiqué) komi m.a. fram að með margvíslegum aðgerðum stjórnvalda hafi heldur dregið úr áhættu til skamms tíma í alþjóðahagkerfinu en á móti komi að hagvexti sé misskipt. Þróuð ríki standi frammi fyrir hægum hagvexti, en meiri vöxt sé að finna meðal nýmarkaðsríkja og þróunarlanda. Nefndarmenn voru sammála um það að nauðsynlegt væri að auka viðnámsþrótt heimsbúskaparins og stuðla að sjálfbærum hagvexti.