Athafnamaðurinn Aron Pétur Karlsson var úrskurðaður gjaldþrota í héraðsdómi Reykjavíkur í janúar. Skiptum lauk í enda apríl. Engar eignir fundust í þrotabúi hans upp í lýstar kröfur upp á 129,6 milljónir króna, að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag. Helstu kröfuhafar voru Arion banki, með kröfu í bú hans upp á 75 milljónir króna og Glitnir með kröfu upp á 40 milljónir. Lífeyrissjóðir og sýslumaðurinn á Blönduósi lýstu lægri kröfum í þrotabúið.

Aron Pétur er sonur Karls Steingrímssonar, sem gjarnan er kenndur við verslunina Pelsinn. Hann var í Hæstarétti í september í fyrra dæmdur í tveggja og árs fangelsi og til þess að sæta upptöku á tæplega hundrað milljónum króna. Þá var hann dæmdur til að greiða Arion banka, Íslandsbanka og Glitni rúma 161 milljón króna.

Málið snérist um sölu Vindasúla á stórhýsi við Hverfisgötu til kínverska sendiráðsins árið 2007 fyrir 870 milljónir króna. Arion banki, Íslandsbanki og Glitnir áttu tryggingabréf með veði í húsinu. Þeir sökuðu Aron um að hafa beitt blekkingum við afléttingu skulda á húsinu og snuprað sig um allt að 300 milljónir króna við söluna. Í byrjun árs 2010 gerði efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra húsleit á starfsstöð Arons og föður hans og fleirum sem sáu um viðskiptin og lagði hald á 93 milljóna króna meintan ávinning af fasteignaviðskiptunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Aron í tveggja ára fangelsi vegna málsins og þyngdi Hæstiréttur refsinguna.