Ársæll Hafsteinsson framkvæmdastjóri LBI var sá lögfræðingur er greiddi mest í útsvar á síðasta ári. Miðað við opinber gjöld hans var hann með rúmlega 13,9 milljónir króna í laun á mánuði á síðasta ári.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur tæplega ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Arnaldur Jón Gunnarsson, Þröstur Ríkharðsson og Ragnar Björgvinsson raða sér í næstu þrjú sæti en tekjur þeirra námu rúmlega 9 milljónum á mánuði. Óttar Pálsson, lögmaður hjá Logos, var í fimmta sætinu með 4,7 milljónir króna.
- Ársæll Hafsteinsson, hdl. frkvstj. LBI 13,9 milljónir
- Arnaldur Jón Gunnarsson, hdl. Kaupþingi 9,3 milljónir
- Þröstur Ríkharðsson, hrl. Meritas 9,2 milljónir
- Ragnar Björgvinsson, hdl. Glitni 9,2 milljónir
- Óttar Pálsson, hrl. Logos 4,7 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .