Hagnaður samstæðu Milestone ehf. á árinu 2005 nam rúmum 17,8 milljörðum króna fyrir skatta. Að teknu tilliti til skatta er hagnaður samstæðunnar tæpir 14 milljarðar króna.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að starfsemi félagsins á árinu einkenndist af viðamiklum fjárfestingum og breytingum á efnahagsreikningi félagsins. Í apríl 2005 keypti félagið 66,6% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og voru kaupin samþykkt af Fjármálaeftirlitinu í lok júní, en frá þeim tíma varð Sjóvá hluti af samstæðu Milestone. Í lok júní 2005 var hlutafé félagsins aukið um 857 milljónir króna að nafnvirði eða ríflega 7,6 milljarða að markaðsvirði og var hlutaféð greitt inn með peningum annars vegar og hlutabréfum í félögum hins vegar.

Stærstu eignir félagsins eru hlutabréf í Glitni hf.(áður Íslandsbanki hf.) og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Í lok árs var hlutur samstæðunnar í Glitni hf. að nafnvirði 2.296,4 mkr. Í janúar 2006 keypti samstæðan hlutabréf í Glitni hf. að nafnvirði 510,7 mkr. og tók þátt í hlutafjárútboði þar sem keypt voru hlutabréf að nafnvirði 162,4 mkr. Hagnaður af fjárfestingastarfsemi Sjóvá var góður en jafnframt var nokkur viðsnúningur í vátryggingastarfsemi félagsins. Vonir standa til þess að afkoma vátryggingastarfsemi haldi áfram að batna á þessu ári. Í upphafi árs 2006 keypti Milestone ehf. hlutabréf í Dagsbrún hf. að nafnvirði 715,2 mkr og ræður samstæðan nú yfir 15,2% hlutafjár í félaginu.

Í desember 2005 gerði Milestone áskriftar- og hluthafasamning við Baug Group hf. Samkvæmt samningnum mun Milestone framselja eignarhluti sína í Glitni hf. að nafnverði 2.150 millj. kr., að meðtöldum framvirkum samningum, til Þáttar eignarhaldsfélags ehf., dótturfélags Milestone ehf. Auk þess mun Milestone framselja eignarhlut sinn í Sjóvá til Þáttar. Framsalið er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins sem ekki liggur fyrir og því hafa viðskiptin ekki verið bókfærð í ársreikningum félaganna. Samkvæmt samningnum mun eignarhluti Milestone í Þætti lækka í 80%.

Eigið fé móðurfélagsins var í upphafi árs rúmlega 2,9 milljarðar en eigið fé samstæðunnar í lok árs nam ríflega 23,6 milljörðum. Að teknu tilliti til innborgunar hlutafjár á árinu nam arðsemi eigin fjár á árinu 2005 ríflega 207% sem er í samræmi við væntingar hluthafa félagsins. Eiginfjárhlutfall móðurfélagsins í lok ársins var 44,5% og samstæðunnar ríflega 28%.