Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er haldinn í dag, föstudaginn 4. maí á Hilton Reykjavík Nordica hótel milli klukkan 13:00 og 15:00. Fundurinn er að þessu sinni haldinn undir þeirri yfirskrift að fjárfesting sé forsenda framfara.
Jens Garðar Helgason formaður samtakanna heldur erindi ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jafnframt verða hvatningarverðlaun sjávarútvegsins afhent, ásamt sérstakri viðurkenningu til Landsbjargar. Auk þess verður tilkynnt um styrki úr Rannsóknasjóði síldarútvegsins.
Erindi sem haldin verða eru:
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri FSF - Hvernig má hámarka virði auðlindar
- Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, sviðsstjóri, fjármálaráðgjafar Deloitte - Auðlind vex af auðlind
- Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku - Afrakstur samstarfs við framsækin sjávarútvegsfyrirtæki
- Helga Sigurrós Valgeirsdóttir viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Arion banka er fundarstjóri.