Kostnaður við árshátíð starfsmanna Vodafone nam um 14 milljónum króna og samsvarar því nánast heildartapi samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi ársins. Heildartap Vodafone samstæðunnar nam 16 milljónum króna eins og fjallað var um í gær.

Árshátíðin 2013 var haldin á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en var á öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Tók Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, þennan kostnað sem dæmi um þann sem féll til á fyrsta ársfjórðungi en var á öðrum tíma á síðasta ári.